UM VERKMÖRK
Kynning eiganda
Sem byggingarverkfræðingur sérhæfður í framkvæmdastjórnun mannvirkja hef ég unnið sem ráðgjafi og stjórnandi við margvísleg verkefni síðan 2006.
Á mínum ferli sem stjórnandi upplifði ég oft skort á beinum og lausnamiðuðum stuðningi ráðgjafa. Því sé ég mikil verðmæti í því að bjóða upp á sveigjanlega og faglega ráðgjöf þegar þörf krefur – án þess að viðskiptavinir þurfi að fara í gegnum íþyngjandi ráðningarferli eða þungt úthlutunarferli stærri fyrirtækja.
Góð ráðgjöf í stjórnun mannvirkjaverkefna og -reksturs byggir á langri reynslu og símenntun. Vegna lengdar og séreinkenna mannvirkjaverkefna tekur hæfni á þessu sviði langan tíma að byggjast upp og verður til með fjölbreyttum lærdómi í gegnum árin. Samhliða reynslunni tryggir símenntun að nýtt sé nútímaþekking og nýjustu möguleikar til að mæta kröfum hvers verkefnis.
Eftir að hafa kynnst markaðnum frá mörgum hliðum síðustu tvo áratugi stofnaði ég félagið Verkmörk sumarið 2026. Markmiðið er að styðja verkkaupa og stjórnendur með beinni og persónulegri hætti sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Heitið Verkmörk (e. project scope) vísar í eitt mikilvægasta hugtak verkefnastjórnunar – fyrirbæri sem hefur lykiláhrif á árangur verkefna.
Ég hef verið lánsamur að fá að leiða mörg og fjölbreytt verkefni til árangurs í gegnum árin og hlakka til næstu áskorana með metnaðarfullum viðskiptavinum.

