top of page

Verkefnastjórnun

hlemmur.jpg

Hlemmur og nágrenni - endurnýjun

Uppfært deiliskipulag gerir ráð fyrir að umferðamiðstöð Strætó víki fyrir miðbæjartorgi þar sem Borgarlína fer framhjá. Stjórnun á þessu opinbera og pólitíska verkefni kallaði á vandaða áfangaskiptingu og meðferð hagaðila.

rvk skolar vidhald.png

Viðhaldsátak skóla Reykjavíkurborgar

Verkefnisáætlun til fimm ára (2022-2026) fyrir viðhaldsátak grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila Reykjavíkurborgar. Umfangsmikil viðhaldsskuld kallaði á vandaða forgangsröðun.

mnha_facade_dec2014.jpg

MNHA Wiltheim - endurnýjun

Endurnýjun á hluta þjóðminjasafns Lúxemborgar, friðuð bygging frá 1530 sem þurfti að aðlaga að kröfum algildrar hönnunar, styrkja burðarvirkið og tengja með glerbrú.

vitavegur_edited.jpg

Grófarhús - Vitavegur

Endurhönnun borgarbókasafns Reykjavíkur í miðbænum til að mæta nútíma kröfum og tilgangi bókasafna. Hlutverkið fólst í stjórnun hönnunar á ábyrgð alþjóðlegs hóps hönnuða.

lsh.jpg

Viðgerðir og endurbætur á Landspítala

Vegna rakaskemmda og kvartana starfsfólks um myglu var úthlutað sér fjármagn í viðhaldsátak árið 2017. Hlutverkið kallaði á markviss innkaup á ráðgjöfum og verktökum.

CG2.jpg

Centre Guillaume II - viðbygging

Viðbygging ráðhúss miðborgar Lúxemborgar tengd með glerbrú við friðaða byggingu. Hlutverkið fólst í stýriverktöku fyrir verkkaupa á tugum verktaka sem kallaði á vandaða áfangaskiptingu og tímaáætlunargerð.

Aðstöðustjórnun

Bláa Lónið buildings
Landspítali buildings
Fasteignir Bláa Lónsins
Stjórnun fasteignaviðhalds og -reksturs
Fasteignir Landspítala
Stjórnun fasteignaviðhalds og -reksturs

Fasteignir sem Bláa Lónið rekur eru ekki einungis baðaðstaðan heldur fimm stjörnu hótel, veitingastaðir, tvö hótel á hálendinu, skrifstofubygging og fjöldi verslana og stoðbyggingar. Eignirnar eru víða um landið (Grindavík, höfuðborgarsvæði, Kerlingarfjöll, Hrauneyjar) sem stýra þurfti á miðlægan hátt.

Fasteignir Landspítala í rekstri voru (2018-2021) um 170.000 fermetrar af fjölbreyttum eignategundum víða um höfuðborgarsvæðið, þ.m.t. meðferðarrými, legurými, endurhæfingardeildir, stærsta þvóttahús og eldhús landsins.

Sjálfbærni bygginga

Groska.webp

Gróska hugmyndahús

Árið 2024 fékk húsið sjálfbærnisvottun fyrir byggingu í rekstri skv. BREEAM-in-Use staðlinum. Verkefnið fólst í mati á hversu vel byggingin uppfyllti viðmið staðalsins og ráðgjöf um hvernig væri hægt að bæta bæði eignina (e. asset) og rekstur (e. management) þess.

hms.png

Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð

Skýrsla unnin fyrir HMS um ávinning af bættri orkunýtingu eldri bygginga. Rannsóknin dró fram takmarkaðan fjárhagslegan ávinning úrbóta vegna lága orkuverða en benti á samfélagslegan ávinning í formi minni losunar og minni þarfar á nýjum virkjanakostum.

Innleiðing hugbúnaðarlausna

MaintainX implementation for Blue Lagoon
Mainmanager at Landspitali

Viðhaldsstjórnun fasteigna Bláa Lónins
Val og innleiðing á nýju viðhaldskerfi

Viðhaldsstjórnun fasteigna Landspítala
Aðlögun viðhaldskerfis að þörfum

Miðlæg viðhaldsstjórnun á dreifðu fasteignasafni kallar á viðhaldskerfi sem gefur stjórnendum góða innsýn í stöðu þess, m.a. fjölda og tegund verkbeiðna. Kerfið þarf hins vegar einnig að taka tillit til tegundar fasteignareksturs, fyrirtækjamenningu og þeirra samskiptakrafa sem þessar forsendur gera. Þetta tókst vel þegar kerfið MaintainX var valið og innleitt hjá Bláa Lóninu 2025.

Landspítali hefur notað hugbúnaðinn Mainmanager (MM) fyrir fasteignareksturinn. MM er aðstöðustjórnunarkerfi (e. facility management system) og er verkbeiðnavirknin einn mikilvægasti hluti þess. Unnið var að því að bæta notkun þess og að aðlaga kerfið að þörfum notenda og rekstrinum með því að þjálfa iðnaðarmenn reglulega í samvinnu við sérfræðinga MM.

bottom of page