top of page

Verkefnastjórnun 

hlemmur.jpg
vitavegur_edited.jpg

Hlemmur og nágrenni - endurnýjun

Grófarhús - Vitavegur

Uppfært deiliskipulag gerir ráð fyrir að umferðamiðstöð Strætó víki fyrir miðbærjartorgi þar sem Borgarlína fer framhjá. Stjórnun á þessu opinbera og pólitíska verkefni kallaði á vandaða áfangaskiptingu og meðferð hagaðila. 

Endurhönnun borgarbókasafns Reykjavíkur í miðbænum til þess að mæta nútíma kröfum og tilgang bókasafna. Hlutverkið fólst í stjórnun hönnunnar á ábyrgð alþjóðlega hóps hönnuða og með tillit til viðmiða BREEAM RFO staðalsins. 

rvk skolar vidhald.png
lsh.jpg

Viðhaldsátak skóla Reykjavíkurborgar

Viðgerðir og endurbætur á húsnæði Landspítala vegna rakaskemmda

Verkefnisáætlun til fimm ára (2022-2026) fyrir viðhaldsátak grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila Reykjavíkurborgar. Umfangsmikil viðhaldsskuld í þeim tuga fasteigna skóla- og frístundasviðs kallaði á vandaða forgangsröðun sem þurfti að taka mið af takmörkuðu fjármagni.

Vegna rakaskemmda og kvartana starfsfólks um myglu var úthlutað sér fjármagn í viðhaldsátaks árið 2017 (1 milljarður) og verkefnasafn skilgreint sem halda þurfti utan um. Hlutverkið kallaði á markviss innkaup á ráðgjöfum og verktökum sem þurfti svo að fylgja eftir í þarfagreiningu, hönnun og framkvæmd.

mnha_facade_dec2014.jpg
CG2.jpg

MNHA Wiltheim - endurnýjun

Centre Guillaume II - viðbygging

Endurnýjun á hluta þjóðminjasafni Lúxemborgar (aile Wiltheim MNHA), friðuð bygging frá 1530 sem þurfti að aðlaga að kröfum algildrar hönnunnar, styrkja burðarvirkið og tengja með glerbrú við aðalbyggingu. Hápólitískt verkefni som fékk mikla fjölmiðlaumfjöllun og miklar kröfur voru gerðar til.

Viðbygging ráðhúsar miðborgar Lúxemborgar tengd með glerbrú við friðaða byggingu (minjar fundust við jarðvinnu í návist þess). Hlutverkið fólst í stýriverktöku fyrir verkkaupa á u.þ.b. tuttugu verktökum sem kallaði á ítarega tímaáætlunargerð og samræmingu. 

Grandhotel.jpg
488.jpg

Grand Hótel - viðbygging

488 Longwy skrifstofubygging

Verkefnastjórn utanhúsfrágangs og annara undirverktaka hjá aðalverktaka (ÍAV). Gluggar og flísar flutt inn frá Kína (Wuhan) eftir rýni gæðastjóra á framleiðsluferlum þ.a. kröfur uppfyllti íslenskar reglugerðir. Efnisafhending löng í tíma og magni sem kallaði á vandaða samræmingu.

Verkefnastjórnun á framkvæmdatíma á LEED vottaðri skrifstofubyggingu á höfuðborgarsvæði Lúxemborgar. LEED hafði áhrifamikil áhrif á tilhögun framkvæmda og skipulag vinnusvæðis sem taka þurfti tillit til.

Aðstöðustjórnun 

BL.webp
lsh.jpg

Fasteignir Bláa Lónsins
Stjórnun fasteignaviðhalds og -reksturs

Fasteignir Landspítala
Stjórnun fasteignaviðhalds og -reksturs

Fasteignir sem Bláa Lónið rekur er ekki einungis baðaðstaðan heldur fimm stjörnu hótel, veitingastaðir, tvö hótel á hálendinu, skrifstofubygging og fjölda verslana  stoðbygging. Eignirnar eru víða um landið (Grindavík, höfuðborgarsvæði, Kerlingarfjöll, Hrauneyjar) sem stýra þurfti á miðlægan hátt.

Fasteignir Landspítala í rekstri voru (2018-2021) um 170.000 fermetra af fjölbreyttum eignategundum víða um höfuðborgarsvæðið, þ.m.t. meðferðarrými, legurými, endurhæfingardeildir, stærsta þvóttahús og eldhús landsins.

Sjálfbærni bygginga

Groska.webp
hms.png

Gróska hugmyndahús

Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð

Árið 2024 var húsið úthlutað sjálfbærnisvottun fyrir byggingu í rekstri skv. BREEAM-in-Use staðlinum. Verkefnið fólst í mati á hversu vel byggingin uppfyllti viðmið staðalsins og ráðgjöf um hvernig væri hægt að bæta bæði eignina (e. asset) og rekstur (e. management) þess.

Skýrsla unnin fyrir HMS um ávinning af bættri orkunýtingu eldri bygginga.  Rannsóknin dró fram takmarkaðan fjárhagslegan ávinning úrbóta vegna lágra orkuverða en benti á samfélagslegan ávinning í formi minni losunar og minni þörf á nýjum virkjanakostum.

Innleiðing hugbúnaðarlausna

MX BL.gif
LSH mm.gif

Viðhaldsstjórnun fasteigna Bláa Lónsins
Val og innleiðing á nýju viðhaldskerfi

Viðhaldsstjórnun fasteigna Landspítala
Aðlögun viðhaldskerfis að þörfum

Miðlæg viðhaldsstjórnun á dreifðu fasteignasafni kallar á viðhaldskerfi sem gefur stjórnendum góða innsýn í stöðu þess, m.a. fjölda og tegund verkbeiðna. Kerfið þar hins vegar einnig taka tillit til tegundar fasteignareksturs, fyrirtækjamenningu og þeirra samskiptakrafa sem þessar forsendur gera. Þetta tókst vel þegar kerfið MaintainX var valið og innleitt hjá Bláa Lóninu 2025.

Á Landspítala var Mainmanager (MM) í notkun á árunum 2018-2021 og líklega enn. MM er aðstöðustjórnunarkerfi (e. facility management system) en er verkbeiðnavirknin hugbúnaðarins sá hluti sem var mest notaður þá en þó ekki nægilega vel og þurfti að aðlaga kerfið að þörfum notenda og þjálfa iðnaðarmenn reglulega í samvinnu við MM til þess að fá bættan ávinning.

bottom of page