UM VERKMÖRK
Kynning eiganda
Sem byggingarverkfræðingur sérhæfður í framkvæmdastjórnun mannvirkja hef ég unnið sem ráðgjafi og stjórnandi við margvísleg verkefni síðan 2006.
Sem stjórnandi upplifði ég oft skort á beinum og lausnamiðaðum stuðningi ráðgjafa og tel mikla þörf og verðmæti felast í þess háttar stuðningi. Verðmætin felast í að geta kallað eftir faglegum stuðningi fljótt og eftir þörfum í staðinn fyrir með íþyngjandi ráðningu eða úthlutunarferla stærri fyrirtækja. Bein ráðgjöf frá þriðja aðila leitar svo út fyrir fyrirtækjaumhverfi viðskiptavina til þess að setja viðfangsefni í samhengi við markaðsaðstæður með hlutlausum hætti við rýni úrlausnarefnis.
Góð ráðgjöf í stjórnun mannvirkjaverkefna og -reksturs byggir á langri reynslu og símenntun. Vegna lengd og séreinkenna mannvirkjaverkefna byggist ráðgjafareynsla upp á lengra tímabili en flestum öðrum verkefnategundum. Hún verður til með lærdómi fjölbreyttra verkefna á mörgum árum. Samhliða reynslu tryggir símenntun að byggt sé á nútímaþekkingu og -möguleikum svo hægt sé að mæta kröfum verkefna miðað við fyrirliggjandi aðstæður á hverjum tíma.
Eftir að hafa kynnst markaðnum frá mörgum hliðum síðustu tvo áratugi stofnaði ég félagið Verkmörk sumarið 2026 til þess að halda áfram að styðja verkkaupa og stjórnendur en nú með beinni og persónulegri hætti sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Orðið Verkmörk (e. project scope) varð fyrir valinu þar sem það táknar mikilvægt hugtak í verkefnastjórnun sem ég hef mest unnið við – fyrirbæri sem hefur lykiláhrif á árangur verkefna.
Ég hef verið lánsamur með þau fjölmörgu og fjölbreyttu verkefni sem ég hef fengið að stýra til árangurs í gegnum árin og hlakka til næstu áskorana með metnarfullum viðskiptavinum.